15. júlí. 2015 01:01
Samstarfaðilar SamVest hópsins blása til sumarmóts í frjálsum íþróttum. Verður það haldið á íþróttavellinum í Borgarnesi sunnudaginn 19. júlí næstkomandi. Héraðssamböndin sem standa að SamVest eru HHF, HSH, HSS, UDN, UMFK, USB og Umf. Skipaskagi.
Mótið á sunnudaginn er ætlað iðkendum á öllum aldri og þar verður keppt í ýmsum greinum, mismunandi eftir aldurshópum.
Að keppni lokinni er stefnt að því að slá upp grillveislu fyrir mannskapinn. Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnum sínum á mótið og styðja þau meðan á keppni stendur.
Skráningar á mótið berist í netfangið palli@hhf.is eða til þjálfara á viðkomandi stað í síðasta lagi klukkan 20 að kvöldi föstudagsins 17. júní.
Sjá nánar auglýsingu í Skessuhorni sem kom út í dag.