02. mars. 2016 01:31
Forsvarsmenn Knattspyrnufélags ÍA halda áfram að styrkja lið sitt fyrir komandi keppnistímabil í Pepsideild kvenna í knattspyrnu. Þegar hafði verið samið við fjóra erlenda leikmenn auk markmanns sem kemur að láni frá Breiðabliki. Í gærkvöldi var síðan skrifað undir samning við hvorki fleiri né færri en sjö unga og efnilega leikmenn til viðbótar, þær Unni Elvu Traustadóttur, Björk Lárusdóttur, Söndru Ósk Alfreðsdóttur, Bergdísi Fanneyju Einarsdóttur, Karen Þórisdóttur, Fríðu Halldórsdóttur og Evu Maríu Jónsdóttur. Þær eru á aldrinum 16 - 21 árs, uppaldar hjá ÍA og hafa leikið með yngri flokkum félagsins á undanförnum árum. Verða þær góð viðbót við leikmannahóp meistaraflokks í baráttunni í efstu deild í sumar.
„Það er mjög sjaldgæft að samið sé við svo marga leikmenn í einu,“ sagði Magnús Guðmundsson við undirritun samninganna. Þakkaði hann öflugu og markvissu yngri flokka starfi félagsins undanfarinn áratug og sagði í samtali við blaðamann ánægjulegt að fylgjast með því starfi bera ávöxt. Framtíðin væri björt og fulltrúar knattspyrnufélagsins biðu komandi sumars með eftirvæntingu.
Meðfylgjandi mynd sýnir stúlkurnar sem skrifuðu undir samning við meistaraflokk í gær. F.v. Eva María Jónsdóttir, Fríða Halldórsdóttir, Karen Þórisdóttir, Bergdís Fanney Einarsdóttir, Sandra Ósk Alfreðsdóttir, Björk Lárusdóttir og Unnur Elva Traustadóttir. Fyrir aftan standa Haraldur Ingólfsson, framkvæmdastjóri KFÍA, Þórður Þórðarson þjálfari og Magnús Guðmundsson formaður.