21. mars. 2016 03:53
Búnaðarsamtök Vesturlands minna á kosninguna um búvörusamningana, en henni lýkur á morgun 22. mars. „Kosningin á Bændatorginu verður opin til miðnættis annað kvöld, 22. mars, en þeir sem nota pappírsatkvæði verða að póstleggja þau á morgun 22. mars í síðasta lagi. Miklu skiptir að þátttaka verði sem best. Símavakt verður hjá Bændasamtökum Íslands annað kvöld. Þeir sem þurfa aðstoð við netkosninguna geta hringt í 563 0396 alveg til miðnættis og leitað aðstoðar ef einhver vandamál koma upp.“