31. mars. 2016 11:00
Arnar Ásbjörnsson á sæti í framkvæmdanefnd Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum. Nú er keppni lokið í deildinni og kveðst hann ánægður með hvernig til tókst á fyrsta vetri keppninnar, þar sem bestu knapar svæðisins áttust við á fjórum mótum. „Þetta gekk framar vonum, ekki spurning,“ segir Arnar í samtali við Skessuhorn „og ég held það hafi bara sannast í þessari keppni að Vestlendingar eru hestaðir í þetta. Standardinn á hestamennskunni hér á svæðinu er slíkur að það er vel hægt að halda svona keppnir,“ bætir hann við.
Keppt er í sambærilegum deildum annars staðar á landinu en keppni þeirra bestu hefur ekki verið reynd hér á Vesturlandi áður. „Þetta var ákveðinn prófsteinn á það hvort við stæðum nógu framarlega til að geta staðið í þessu og ég held að við höfum sýnt að við gerum það,“ segir hann.
Nánar í Skessuhorni vikunnar sem kom út í gær.