04. apríl. 2006 04:16
Snæfellsbær og Umhverfisstofnun hafa ákveðið að efna til samkeppni um hönnun þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellissandi og fer samkeppnin fram samkvæmt reglum Arkitektafélags Íslands. Miðstöðin mun rísa á lóð við Útnesveg. Við hlið lóðarinnar er Sjómannagarðurinn þar sem gömul verbúð hefur verið endurgerð.
Í Sjómannagarðinum er einnig annað hús í gömlum stíl sem hýsir safn sem tengist sjómennsku. Ákveðið hefur verið að tjaldsvæði verði upp með hraunjaðri vestan við þjóðgarðsmiðstöðina. Svæðið í heild verður því miðstöð fyrir ferðafólk sem leggur leið sína um Hellissand.
Meginmarkmið keppninnar er að skapa aðlaðandi og hentuga umgjörð um starfsemi þjóðgarðsins. Í keppnislýsingur segir að staðsetning hússins geri kröfur til aðlögunar þess að umhverfi. Innra skipulag þarf að þjóna vel mismunandi þáttum starfseminnar um leið og innri tengsl þurfa að vera eðlileg og greið. Æskilegt er að húsið undirstriki hlutverk þjóðgarðsins. Miðað er við að stærð hússins verði ekki meiri en 745 fermetrar og að byggingarkostnaður verði ekki meiri en 150 milljónir króna.
Veitt verða verðlaun að heildarfjárhæð allt að kr. 3,4 milljónir króna. Stefnt er að veitingu þriggja verðlauna, 1., 2. og 3. verðlauna. 1. verðlaun verða eigi lægri en 1,7 milljón króna. Auk þess er dómnefnd heimilt að veita tillögum viðurkenningar fyrir allt að 600 þúsund krónur.