18. ágúst. 2006 12:19
Þórunn María, Jökull, Björg og Guðrún Hulda ráðin:
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur staðfest ráðningu fjögurra nýrra starfsmanna af fimm sem auglýst var eftir fyrr í sumar. Að sögn Páls S Brynjarssonar, sveitarstjóra á aðeins eftir að taka ákvörðun um hver verður valinn í nýtt starf markaðs- og menningarfulltrúa en ákvörðun um ráðninguna verður tekin í dag, miðvikudag, á fundi byggðaráðs.
Í stöðu skólastjóra Varmalandsskóla hefur Þórunn María Óðinsdóttir, 34 ára verið ráðin. Þórunn María hefur starfað við skólann og er honum auk þess vel kunnug þar sem hún var sjálf þar á grunnskólaárum sínum, en hún er frá Einarsnesi í Borgarhreppi. Flemming Jessen skólastjóri mun starfa að ýmsum verkefnum við skólann til 1. nóvember nk. en Þórunn María hefur þegar tekið við starfi skólastjóra.
Jökull Helgason, sem undanfarið hefur starfað sem bæjartæknifræðingur í Grundarfirði hefur verið ráðinn í nýtt starf umsjónarmanns eigna og verklegra framkvæmda hjá Borgarbyggð.
Þá var Björg Gunnarsdóttir á Hvanneyri ráðin í nýtt starf umhverfisfulltrúa hjá sveitarfélaginu. Starfsstöð hennar verður í Reykholti.
Loks var Guðrún Hulda Pálmadóttir ráðin í starf afgreiðslufulltrúa á skrifstofu sveitarfélagsins í Borgarnesi.