25. ágúst. 2006 02:05
Fiskistofa hefur auglýst eftir húsnæði fyrir útibú sitt í Stykkishólmi frá og með 1. apríl 2007. Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu fullbúið til notkunar án búnaðar og þarf það að vera 70-100 fermetrar að stærð. Eins og kunnugt er ákvað Árni M. Mathiesen, þáverandi sjávarútvegsráðherra, á síðasta ári að færa stóran hluta af starfsemi Fiskistofu frá höfuðborgarsvæðinu til landsbyggðarinnar.
Var ákvörðun hans stærsta einstaka ákvörðun um flutning opinberra starfa frá upphafi enda um að ræða á fjórða tug starfa. Flutningur þessara starfa fer fram á árunum 2006-2009. Meðal þess sem ákveðið var á þessum tíma var að á árinu 2007 yrði stofnað útibú Fiskistofu í Stykkishólmi með þremur eftirlitsmönnum og yfirmanni útibús og á árinu 2008 yrðu ráðnir til útibúsins þrír starfsmenn og yrðu þeir því sjö talsins. Í auglýsingu Fiskistofu er hins vegar sagt að í húsnæðinu þurfi að vera ein skrifstofa og sameiginleg aðstaða fyrir allt að fjóra eftirlitsmenn.