10. júní. 2007 09:00
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur gefið frá sér viljayfirlýsingu um að framtíðarstaðsetning grunnskóla í Hvalfjarðarsveit skuli vera í tengslum við núverandi staðsetningu Heiðarskóla. Hallfreður Vilhjálmsson, oddviti, tilkynnti þetta á samkomu í félagsheimilinu Hlöðum í gær, á sama tíma og nýtt byggðamerki var afhjúpað. Yfirlýsinguna á eftir að leggja fyrir sveitarstjórn til samþykktar og verður það gert þann 26. júní næstkomandi. Í viljayfirlýsingunni kemur fram að fara eigi í þarfagreiningu á skólastarfinu og stofna til hönnunarsamkeppni um nýtt skólahús. Þá verði stofnuð fimm manna framkvæmdarnefnd sem hafi yfirumsjón með verkefninu.
Nokkur styr hefur staðið um framtíðarstaðsetningu skólans í Hvalfjarðarsveit en nú hefur sveitarstjórn tekið af skarið, þó eftir eigi að samþykkja tillöguna formlega. Ef eitthvað er að marka viðtökurnar sem tilkynningin fékk á Hlöðum í gær er meiri sátt en minni um málið, því lófatakið dundi lengi um salinn eftir ræðu oddvitans.