10. júní. 2007 08:41
Bílvelta varð í Hvalfjarðargöngunum fyrir um það bil klukkustund og hefur göngunum verið lokað af þeim sökum. Einn maður var í bílnum en hann var kominn út úr honum þegar lögreglu bar að og því líklega ekki mikið slasaður. Ekki liggur fyrir hvernig bíllinn valt. Búist er við að göngin verði lokuð í að minnsta kosti tvær klukkustundir á meðan hreinsunarstarf stendur yfir. Lögregla bendir vegfarendum á að fara um Hvalfjörðinn á meðan.