03. september. 2007 02:33
 |
Kristín ritstjóri |
Á fimmtudaginn hefst útgáfa á nýju héraðsfréttablaði á Ströndum sem fengið hefur nafnið Gagnvegur. Langt er um liðið síðan síðast var gefið út prentmiðill á Ströndum og ætti það því að verða kærkomin viðbót við fjölmiðlun á svæðinu. Blaðið verður í senn frétta-, dagskrár og auglýsingamiðill og verður dreift ókeypis á öll heimili í Strandasýslu. Það er Kristín Sigurrós Einarsdóttir, fyrrum Lunddælingur og nú grunnskólakennari á Hólmavík sem gefur út og ritstýrir hinu nýja blaði. Kristín var fyrir nokkrum árum starfsmaður Skessuhorns en hefur undanfarin ár búið á Hólmavík. Hún er jafnframt fréttaritari fyrir Morgunblaðið og Bændablaðið og pistlahöfundur hjá Svæðisútvarpi Vestfjarða, ásamt því að vera tengiliður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða á Ströndum. Meðal efnis í blaðinu verður viðtal við Strandamann vikunnar, atburðadagatal, fréttir og sjónvarpsdagskrá.