13. september. 2007 04:38
Sveitarfélagið Borgarbyggð lenti í öðru sæti yfir veðursælustu sveitarfélög landsins í veðurleik veðurstofu Stöðvar2 og Vísis í sumar. Leikurinn stóð frá júní til ágústloka. Í fyrsta sæti varð sveitarfélagið Bláskógabyggð á Suðurlandi og í þriðja sæti Rangárþing Eystra. Niðurstöðurnar voru fengnar með því að taka saman veðurskráningar þátttakenda frá hverju sveitarfélagi fyrir sig og bera saman við niðurstöður þátttakenda frá öðrum sveitarfélögum. Meðalhiti í Borgarbyggð var 16 - 17 gráður og skólskinsstundir um fimm.