02. apríl. 2008 04:10
„Þetta var gríðarlega skemmtilegt og tókst svakalega vel. Börnin voru vel með á nótunum og fóru öll á ið í sætunum þegar Þjóðlagasveitin byrjaði að spila. Bæði féll lagið sem Tryggvi Már Baldvinsson í Sinfóníunni samdi um Maxímús Músíkús í kramið hjá þeim, sem við spiluðum margoft, og eins tónlistin með írsku stemningunni. Þetta var allt saman mjög ánægjulegt, stemningin var gríðarlega skemmtileg, bæði tónlistin og Maxímús í fullum skrúða áttu alla athygli barnanna. Hljómsveitin fékk líka mjög góða einkunn hjá fólkinu í Sinfóníunni, sem hafði orð á því hvað við ættum góða sveit fiðluleikara,“ segir Skúli Ragnar Skúlason stjórnandi Þjóðlagasveitar Tónlistarskóla Akraness sem hitaði upp í hálftíma fyrir Tónsprotann, tónleika fyrir börn sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stóð fyrir í Háskólabíói á laugardag.
Tónlistin í Tónsprotanum að þessu sinni var tileinkuð útkomu bókarinnar "Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina" eftir Hallfríði Ólafsdóttur og Þórarinn Má Baldursson. Bókin segir frá ævintýrum lítillar músar sem villist inn á æfingu hjá sinfóníuhljómsveit og heillast af þeirri tónaveröld sem þar ríkir. Á tónleikunum las Valur Freyr Einarsson leikari söguna, hljómsveitin seiddi fram viðeigandi leikhjóð og lék þau tónverk sem koma við sögu í bókinni.