03. apríl. 2008 01:52
Vísir.is flytur aldeilis ótrúlega frétt í dag og til þess er tekið að fréttin er skrifuð 3. apríl en ekki þann fyrsta. Þar segir að Orkuveita Reykjavíkur hafi í dag auglýst til sölu í Morgunblaðinu fjöldann allan af líkamsræktartækjum. Um er að ræða gömul tæki sem fyrirtækið keypti notuð þegar nýja húsið var tekið í notkun. Ummæli Sigrúnar A. Ámundadóttur hjá Orkuveitunni hafa hinsvegar kallað á fjöldann allan af viðbrögðum fólks af Vesturlandi sem á vart orð til að lýsa vanþóknun sinni yfir viðhorfi til landsbyggðarfólks sem í ummælunum birtast.
Í viðtalinu við Vísi segir Sigrún m.a: „Þegar við fluttum yfir í núverandi húsnæði var gert ráð fyrir líkamsræktaraðstöðu og voru keypt notuð tæki. Síðan var gerður þjónustusamningur við World Class sem sá um aðstöðuna. Fyrir nokkru ákvað World Class síðan að þessi tæki væru ekki boðleg fyrir sína kúnna þannig að þeir tóku þetta yfir í heild sinni og fylltu stöðina af sínum tækjum," segir Sigrún en í kjölfarið var gömlu tækjunum hent út. “Tilvalið fyrir fólk á landsbyggðinni,” segir Sigrún.
Í viðtalinu segir hún að tækin séu mörg hver komin til ára sinna og séu ekki boðleg líkamsræktarstöðvum í Reykjavík. „Þetta eru engu að síður tæki sem stöðvar úti á landi geta boðið sínum viðskiptavinum, við gerum nefnilega minni kröfur úti á landi," segir Sigrún en öll tækin verða seld í einu lagi.