04. apríl. 2008 04:30
 |
Ein af fjölmörgum brekkum á leiðinni. |
Kristinn Einarsson þrautakóngur frá Akranesi, betur þekktur sem Kiddi kafari, er að takast á við enn eina áskorunina þessa dagana. Það er skíðaganga á Grænlandi þar sem gengið er í þrjá daga, alls 100 km og meðal annars gist í tjöldum í grænlenska kuldanum, en hann stóð í rúmum þrjátíu mínusgráðum dagana áður en Kristinn lagði í gönguna sem hófst í dag.
Þetta er í tólfta skipti sem blásið er til þessarar skíðagöngu, en nokkrum sinnum hefur þurft að fella hana niður vegna veðurskilyrða. Gangan er ekki hættulaus, þó að ekki eigi að koma til að hvítabirnir verði á vegi göngugarpanna. Fyrir nokkrum árum varð það slys að einn göngumanna lenti í snjóflóði og lést.
Skíðagangan er mikil þrekraun, en gönguleiðin þykir búa yfir töfrum frá náttúrunnar hendi. Skíðagöngumennirnir ganga með bakpoka, sem geymir hluta af nesti fararinnar. Kristinn Einarsson er eins og Skagamenn og fleiri vita, þekktur fyrir áhuga sinn á sjósundi, köfun, fjallaklifri og fleiri þrautum.