07. apríl. 2008 10:46
Körfuknattleikslið Snæfells hélt til Grindavíkur í kvöld til þess að spila fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins. Þar sigruðu þeir, 94-97. Það er sem kunnugt er það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki sem kemst í úrslit. Leikurinn var spennandi frá upphafi til enda og lokaspretturinn var ótrúlegur. Þegar aðeins ein mínúta var eftir af leiknum var staðan jöfn, 92-92.
Grindvíkingar fengu þá tvö vítaskot og skoruðu úr þeim báðum en Justin Shouse svaraði fyrir sig með því að skora sína fyrstu þriggja stiga körfu í leiknum. Strax í kjölfarið var dæmt víti á Grindvíkinga og Magni Hafsteinsson skoraði úr þeim báðum. Staðan var því 94-97 þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir og urðu það lokatölur leiksins. Glæsilegur sigur hjá Snæfellingum.
Justin Shouse var stigahæsti leikmaður liðsins með 17 stig. Slobodan Subasic gerði 16 og Sigurður Þorvaldsson 15.