14. apríl. 2008 11:29
Snæfelli tókst ekki að gera út um undanúrslitarimmuna við Grindvíkinga á laugardag. Heimamenn áttu góðan leik en gestirnir voru langt frá sínu besta. Lokatölur voru 90:71. Staðan í einvíginu er nú 2:1. Snæfell getur með sigri í Hólminum í kvöld komið sér í úrslitin. Það er lífsspursmál fyrir þá því annars verða Grindvíkingar komnir með betri stöðu í rimmunni.
Grindvíkingar voru með undirtökin frá upphafi til enda í leiknum á laugardaginn, stjórnuðu hraðanum ásamt því að spila grimman varnarleik og taka fast á gestunum. Heimamenn voru með 12 stiga forskot eftir fyrsta leikhluta og mest náðu Grindvíkingar 25 stiga forystu í seinni hálfleiknum. Þorleifur Ólafsson var þeirra stigahæstur með 20 stig. Hjá Snæfelli skoraði Justin Shouse mest 16 stig og Hlynur Bæringsson gerði 10.