10. júní. 2008 10:14
Miðasala á Landsmót hestamanna sem fram fer um næstu mánaðamót gengur vel, að sögn skipuleggjenda mótsins og er undirbúningur í fullum gangi. Svæðið á Gaddstaðaflötum við Hellu er að taka á sig mynd og mikil stemning að myndast í kringum úrtökur þessa dagana um land allt. Örfá stæði eru enn laus í hjólhýsastæði með aðgengi að rafmagni á Landsmótinu. Síðasti dagur til að kaupa í þessi stæði er nk. sunnudagur, 15. júní. Þess ber þó að geta að næg stæði eru fyrir hjólhýsi án aðgengis að rafmagni en ekki eru teknar pantanir fyrir þau stæði sérstaklega líkt og á almenna tjaldstæðinu. Þar gildir reglan; fyrstur kemur – fyrstur fær!