11. júní. 2008 04:17
Ekki er nóg með að mál leikmanna og þjálfara meistaraflokks karla hjá Skaganum hafa verið til meðferðar hjá aga- og úrskurðarnefnd KSÍ að undanförnu, heldur kom upp á dögunum sýnu alvarlegra mál er snertir kvennaboltann. Á fundi aganefndarinnar í fyrrakvöld var Haraldur S. Magnússon, þjálfari meistara- og 2. flokks kvenna hjá ÍA úrskurðaður í keppnisbann til áramóta og Karitas Hrafns Elvarsdóttir leikmaður ÍA í bann til 15. október.
Til grundvallar þessum dómi lá kæra þess efnis að Haraldur tefldi Karitas fram í leik með 2. flokki ÍA/Aftureldingar gegn Haukum á Íslandsmótinu þann 26. maí. Nafn Karitasar var ekki á leikskýrslu, en hún er fædd árið 1988 og því of gömul til að leika með 2. flokki. Karitas er leikmaður með meistaraflokki kvenna hjá ÍA.
Dómsniðurstaðan var sú að þeim Haraldi og Karitas er óheimil þátttaka í öllum opinberum mótum á vegum KSÍ það sem eftir er á þessu keppnistímabili og er Haraldur í bann til áramóta. Knattspyrnudeild ÍA var jafnframt gert að greiða 30 þúsund krónur í sekt vegna málsins.