30. júní. 2008 03:16
Í góða veðrinu að undanförnu hefur verið mikil þátttaka í gönguferðum um hið fagra umhverfi dvalarheimilisins Höfða á Akranesi og niður með Langasandi. Stjórnendur heimilisins leituðu til vinnuskóla bæjarins og óskað eftir aðstoð þaðan. Einar Skúlason forstöðumaður vinnuskólans tók þessari málaleitan ljúflega og útvegaði 4 stúlkur sem mæta á hverjum morgni og aðstoða við göngutúrana. Mikil ánægja er með þátttöku þessara dugnaðarstúlkna sem án efa hafa gott af að kynnast gamla fólkinu.