28. október. 2008 08:12
Í fréttatilkynningu frá Menntamálaráðuneytinu kemur fram að innritun í dagskóla framhaldsskólanna fer fram dagana 1. - 20. nóvember nk. á menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dagskóla eru rafrænar og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskólanna. Einstakir skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartímabil og er upplýsingar um það að finna á vefsíðu viðkomandi skóla. Umsækjendur þurfa að hafa tiltækan veflykil sem hægt er að sækja um á menntagatt.is. Nemendum sem koma erlendis frá er einnig bent á að setja sig í samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja um. Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt skólum til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum.
Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa slíkt nám í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og leggja til umsóknareyðublöð. Loks er umsækjendum bent á að hafa samband við viðkomandi skóla hyggist þeir stunda nám í kvöldskóla eða fjarnámi.