03. nóvember. 2008 04:30
Skagamenn byrja keppni í 1. deildinni í fótboltanum næsta vor með því að fara norður til Akureyrar þar sem mótherjarnir verða Þórsarar. Hitt Vesturlandsliðið í 1. deildinni, Víkingur Ólafsvík, leikur einnig að heiman í fyrstu umferði, sækir þá nafnana í Víkinni í Reykjavík heim. Dregið var um töfluröð liða í Íslandsmótinu í knattspyrnu í lok síðustu viku, nema neðstu deildanna, en leikdagar verða ekki ákveðnir fyrr en nær dregur vori. Stuðningsmenn Vesturlandsliðanna þurfa að bíða fram í sjöttu umferð að þau mætist og þá verða það Víkingar sem fá Skagamenn í heimsókn.
Í síðustu umferðinni, sem væntanlega verður leikin í kringum 20. september, enda Skagamenn og stuðningslið þeirra „Skagamörkin“ á því að mæta Selfyssingum og stuðningsmönnum þeirra „Skjálftanum“ á Selfossi, en eftir árangri liðanna síðasta sumars að dæma gætu þessi félög átt eftir að berjast um annað tveggja sæta meðal þeirra bestu í efstu deild. Á sama tíma fá Víkingar Ólafsvík lið Fjarðabyggðar í heimsókn. Þar gæti einnig verið sitthvað í húfi ef tekið er tillit til síðustu leiktíða, en þessi félög voru að berjast á mjög svipuðum slóðum í 1. deildinni síðasta sumar.