12. nóvember. 2008 10:30
Byggðaráð Dalabyggðar bókaði á fundi sínum í gær um tekjustofna sveitarfélaga. Ráðið lýsir yfir undrun og vonbrigðum með einhliða ákvörðun ríkisins um að lækka fasteignaskatt af opinberu húsnæði í eigu ríkisins úr 1,32% í 0,88% af fasteignamati. Tillaga um þetta var lögð fram á Alþingi í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2009. “Þann 2. apríl sl. var undirritaður nýr samstarfssáttmáli á milli ríkis og sveitarfélaga sem átti að tryggja að einhliða ákvarðarnir sem þessi heyrðu sögunni til. Dalabyggð skorar á þingmenn að samþykkja ekki framkomnar tillögur um lækkun fasteignaskatts á húsnæði í eigu ríkisins. Skerðing tekjustofna sveitarfélaganna er vanhugsuð aðferð til sparnaðar enda eru sveitarfélögin hornsteinn þjónustu við íbúana.