03. júní. 2009 10:42
 |
Þær fundu sér skjól í fjögur ár í mannlausu Kaupþingslandi. |
Síðastliðinn mánudag heimtust kindur frá bænum Álftártungu á Mýrum sem ekki hafa komið á hús síðan vorið 2005 þegar þær voru lömb. Hlýtur það að heyra til undantekninga að kindur nái í fjögur ár að komast undan vöskum smölum svo lengi. Hinsvegar ber á það að líta að þær héldu til á jörð sem eignamenn úr Reykjavík eiga og þar er því sjaldan smalað og nánast enginn umgangur. Kindurnar höfðu haldið til í landi Hvítsstaða í nágrenni Urriðaár og sáust merki um hvar þær höfðu haldið til. Jörðin er í eigu manna sem tengdust Kaupþingi. Þær höfðu greinilega haldið til saman en án hrúts og hafa því væntanlega ekki borið lömbum öll þessi ár. Það má því segja að þetta hafi ekki verið sérlega arðbær geymsla á fé í vörslu Kaupþings sl. fjögur ár.
Að sögn Svanhildar Svansdóttur bónda í Álftártungu er talið að sést hafi til kindanna um svipað leiti í fyrra en þá fundust þær ekki. Gylfi Jónsson bóndi í Miðhúsum sá þær svo aftur núna og náði Sigurður Arelíusson bóndi í Álftártungu að handsama þær á mánudaginn. Kindurnar eru afar styggar og höfðu ekki fengist til að éta fyrsta sólarhringinn eftir að þær voru settar á hús. Þær eru í mörgum reifum en mjög vel á sig komnar.