21. júní. 2009 12:10
Skrifstofa Verkalýðsfélags Snæfellinga að Ólafsbraut 19 í Ólafsvík varð fyrir miklum skemmdum í fyrrinótt þegar ölvaður ökumaður ók á inngang hússins. Maðurinn stakk af eftir ákeyrsluna en náðist skömmu síðar og var samstundis sviptur ökuréttindum. Skrifstofan er til húsa í gömlu sjóbúðinni þar sem á neðri hæð eru hin ýmsu fyrirtæki en á efri hæð er hluti af starfsemi Hótels Ólafsvíkur. Bráðabirgðaviðgerð á húsinu hófst strax í gær en tjónið er sagt hlaupa á milljónum króna.