04. júlí. 2009 01:00
Bæjarráð Akraness beinir þeirri eindregnu áskorun til ríkisstjórnar Íslands, samgönguráðherra og þingmanna Norðvesturkjördæmis að fylgja eftir án tafar tillögum og hugmyndum um tvöföldun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi og tvöföldun Hvalfjarðarganga. Bæjarráð Akraness tekur undir með íbúum á Kjalarnesi að óviðunandi er með öllu að þar eigi sér ekki stað án tafar nauðsynlegar vegabætur. Ályktunin var gerð á fundi bæjarráðs Akraness sl. föstudag í kjölfar mikillar umræðu um forgangsröðun í samgöngumálum að undanförnu.
Í ályktuninni segir einnig að liðlega tvær milljónir ökutækja fara um Kjalarnes og Hvalfjarðargöng árlega og einsýnt að mæta þurfi eðlilegum kröfum um umferðaröryggi með nauðsynlegum framkvæmdum. Vísað er til samkomulags Spalar ehf. og Vegagerðarinnar frá 9. janúar 2007 þar sem Vegagerðinni er tryggð fjármögnun til nauðsynlegra undirbúningsframkvæmda vegna tvöföldunar vegar á Kjalarnesi, en Spölur ehf. hefur þegar lokið öllum nauðsynlegum undirbúningsrannsóknum vegna tvöföldunar Hvalfjarðarganga.
Að mati bæjarráðs Akraness er óviðunandi að hægagangur á undirbúningi tefji nauðsynlegar framkvæmdir. „Tvöföldun vegar á Kjalarnesi og tvöföldun Hvalfjarðarganga er í senn mjög mikilvægt öryggismál en einnig skynsamleg og arðsöm framkvæmd ekki síst nú þegar brýn nauðsyn er á atvinnuskapandi framkvæmdum,“ segir ennfremur í ályktun bæjarráðs Akraness.