10. júlí. 2009 12:01
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurafurðum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. ágúst næstkomandi. Ástæður þessara verðhækkana eru sagðar hækkanir á aðföngum og öðrum rekstrarkostnaði í mjólkuriðnaði. Verð til bænda hækkar ekki. Í einu tilfelli lækkar verð, það er á rjóma um 0,7%, en allar aðrar mjólkurvörur hækka í verði. Verð mjólkurvara mun taka mismiklum breytingum en hækkar að meðaltali um 3,47%. Heildsöluverð nýmjólkur mun hækka um rúmar 8 krónur á lítra eða 9%. Minni verðhækkun verður á léttmjólk, eða um 4,6%. Heildsöluverð á rjóma mun lækka um 0,7% eins og áður segir. Heildsöluverð á mjólkurdufti til iðnaðar hækkar um 13,5%. Við þessa breytingu má gera ráð fyrir að einn lítri af nýmjólk hækki í smásölu um tíu krónur, en álagning smásala á mjólkurvörum er frjáls.