14. júlí. 2009 10:38
Það var hress hópur ungmenna úr Vinnuskóla Snæfellsbæjar sem tók til hendinni í fjörunni við Malarrif í síðustu viku. Krakkarnir komu í einn dag í vinnu fyrir þjóðgarðinn við að tína rusl úr fjörunni og nágrenni. Ruslið var flokkað í það sem var endurvinnanlegt og ekki. Aðeins tókst að hreinsa hluta strandarinnar þar sem ruslið reyndist það mikið en ströndin leit ólíkt betur út eftir tiltektina. Í heild tíndi hópurinn 260 kg af rusli. Myndina tók Guðrún Lára Pálmadóttir af hópnum þegar tekin var hádegispása til að snæða grillaðar pylsur.