17. júlí. 2009 08:05
Eftirlit með ökutækjum verður aukið í dag, föstudaginn 17. júlí, þegar lögreglan, Rannsóknarnefnd umferðarslysa, Umferðarstofa og Vegagerðin taka höndum saman við að kanna ástand eftirvagna og tengitækja á vegum landsins. Í fréttatilkynningu frá Umferðarstofu kemur fram að hugað verður að frágangi tengibúnaðar, hvort fullnægjandi speglar séu á bílnum og hvort ljósabúnaður sé fullnægjandi. Fólk er hvatt til að hafa þessi atriði í lagi, til að koma í veg fyrir vandræði. Eftirlitið verður á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi og mun vera kappkostað við að stöðva alla ferðavagna sem fara þar um. Einnig verður hugað að því hvort ökutækið sem dregur eftirvagninn og hann sé með gilda skoðun.