25. ágúst. 2009 02:35
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tók málefni Sementsverksmiðjunnar upp í ríkisstjórn í morgun. “Mér finnst mikilvægt að allt sé gert sem mögulegt er til að verja stöðu og framtíð íslenskrar sementsframleiðslu. Það ríkja nú neyðarlög á sviði fjármála- og viðskiptalífs landsins. Í gildi eru lög um gjaldeyrishöft og barist er fyrir hverju starfi sem skilar verðmætum í þjóðarbúið og sparar erlendan gjaldeyri. Það skýtur því skökku við að opinberir aðilar skulu áfram kaupa innflutt sement til sinna framkvæmda á sama tíma og barist er fyrir lífi og framtíð íslenskar sementsframleiðslu. Það er allt of mikið í húfi til að menn reyni ekki hvað hægt er til að verja sérhæfð störf eins og þau sem eru í Sementsverksmiðjunni og því vona ég að ekki þurfi að koma til lokunar hennar síðar í haust,” sagði Jón Bjarnason í samtali við Skessuhorn. Jón segir að ráðherrum umhverfis- og iðnaðarmála hafi verið falið að setja sig inn í málið og skila minnisblaði fyrir ríkisstjórn.