03. september. 2009 08:05
 |
Öndverðarnes. Ljósm. Haukur Snorrason |
Menningarminjadagur Evrópu verður haldinn sunnudaginn 6. september næstkomandi. Fjölbreytt dagskrá verður á menningarminjadeginum í ár en þema dagsins að þessu sinni er torfhús í fortíð og nútíð. Klukkan 14:00 á sunnudaginn mun Magnús A. Sigurðsson minjavörður Fornleifaverndar ríkisins á Vesturlandi verða með vettvangsferð þar sem hann kynnir fornar tóftir bæjarins Öndverðarness í Snæfellsnesþjóðgarði. Tilgangur menningarminjadagsins er að vekja athygli almennings á gildi menningararfsins og skapa vettvang til þess að almenningur geti kynnst sögulegu umhverfi sínu. Dagskrá menningarminjadagsins má finna í heild á heimasíðu Fornleifaverndar ríkisins,
www.fornleifavernd.is