21. september. 2009 12:03
Fimmtudagskvöldið 24. október verður sérstök styrktarsýning í Landnámssetrinu á leikritinu Brák eftir Brynhildi Guðjónsdóttur. Allur ágóði af sýningunni rennur til endurhæfingardeildar Grensásspítala og eru enn til lausir miðar. Brák er einleikur í fullri lengd eftir Brynhildi Guðjónsdóttur. Verkið er sérstaklega samið til sýninga á Söguloftinu á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Leikritið er saga Þorgerðar Brákar, fóstru Egils Skallagrímssonar og ambáttar Skallagríms Kveldúlfssonar, unnið upp úr Egilssögu, innblásið af sagnahefð sögualdar á Íslandi og sögum þeirra fjölmörgu kvenna sem hnepptar voru í ánauð og fluttar til Íslands á Víkingaöld.