30. september. 2009 03:02
Síðastliðinn mánudag hófst vikuleg spilamennska hjá Briddsfélagi Borgarfjarðar í Logalandi með þátttöku þrettán para. Spilað verður á mánudagskvöldum klukkan 20 og er öllum áhugasömum boðið að taka þátt. Næstu kvöld verða verður spilaður eins kvölds tvímenningur. Á mánudaginn voru það feðginin Lárus Pétursson og Björk dóttir hans sem höfðu yfirburðasigur í tvímenningnum með 64,5% skor. Í öðru sæti urðu Jón og Baldur, í þriðja sæti Rúnar og Dóra en í fjörða sæti bræðurnir Björn og Ingimundur Jónssynir frá Deildartungu. Ingimundur er vanur spilari en Björn hefur hins vegar einungis tvisvar spilað bridds áður. Í bæði skiptin í hálfrökkri í annarri leit á Arnarvatnsheiði. Að vísu var sagnkerfið ekki flókið hjá þeim bræðrum. Til dæmis óð Ingimundur í einu spilinu beint í sex grönd og urðu þeir eina parið sem sagði sögnina og náði 12 slögum. Sýnir þessi árangur Björns að ekki er alltaf þörf á að hafa langa reynslu til að byrja að spila bridds í góðum hópi. Því er um að gera að slá í gráu merina og mæta í Logaland.