30. september. 2009 03:09
Mikið hefur verið um útköll og aðstoðarbeiðnir síðustu daga til björgunarsveita frá ferðalöngum sem fara á hálendið vanbúnir og einbíla og lenda í ógöngum. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að svo virðist sem einstaklingar geri sér ekki grein fyrir því að víða á hálendinu er komin vertrafærð, umferð um hálendið sáralítil og landverðir og skálaverðir farnir af svæðinu nema í Þórsmörk og Landmannalaugum. Síðastliðinn mánudag barst Snorra á Augastöðum, formanni björgunarsveitarinnar Ok í Borgarfirði, tilkynning frá erlendum ferðamönnum sem sátu fastir í bíl sínum á Kaldadal. Fór hann sjálfur til að aðstoða og dró bílinn úr skafli. Snorri sagði í samtali við Skessuhorn að í raun hefði átt að vera búið að loka veginum og vonandi væri búið að gera það núna. Hann hefði altént farið fram á að lögreglan beindi þeim tilmælum til Vegagarðinnnar að loka nú Kaldadalnum fyrir vetrarumferð.