07. október. 2009 04:03
 |
Gunnar formaður Hörkutólafélagsins. |
„Tildrögin að stofnun félagsins voru þau að okkur var ekkert farið að lítast á ástandið meðal kennara í landinu. Við vorum orðnir lafhræddir um að karlmennskan væri að líða undir lok í stéttinni. Okkur bárust fréttir af því að fyrir sunnan væri ástandið orðið það alvarlegt að karlkennararnir margir væru komnir með brjóst og orðnir skrækróma. Náttúrlega fyrir löngu hættir að berja í borðið. Þetta var hvatinn að því að við kennarnir við Grunnskóla Stykkishólms stofnuðum Hörkutólafélagið fyrir rúmum tíu árum. Tilgangur félagsins er að standa vörð um karlmennskuna í menntakerfinu, reyna að þynna aðeins út kvenhormónana,“ segir Gunnar Gunnarsson kennari og listamaður, gjarnan titlaður formaður Hörkutólafélagsins.
Sjá nánar í viðtali við Gunnar í Skessuhorni sem kom út í dag.