02. desember. 2009 07:03
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra gaf nýlega út reglugerð sem heimilar einhliða veiðar íslenskra skipa á 130.000 tonnum af makríl á árinu 2010. Benti hann á að Íslendingum var ekki boðið að sitja fund annarra strandríkja nú í nóvember á jafnréttisgrundvelli um stjórn makrílveiðanna og skiptingu þeirra. Nú hafa Evrópusambandið, Færeyjar og Noregur boðið Íslenskum stjórnvöldum til viðræðna um heildarstjórnun makrílveiða í Norðaustur Atlantshafi í mars næstkomandi og hefur ráðherra þekkst boðið. “Það er stór áfangi fyrir okkur að vera boðin full aðild að viðræðunum um þessa mikilvægu fisktegund. Aðilar eru nú sammála um nauðsyn þess að strandríkin fjögur, sem öll eiga hagsmuna að gæta, komi á sameiginlegri stjórnun veiða úr þessum mikilvæga stofni til að tryggja sjálfbæra nýtingu,” segir Jón í samtali við Skessuhorn. Á fundinum í mars verður meðal annars rætt um aflahámark, skiptingu afla milli landa, aðgang að lögsögu, vísindasamstarf og eftirlit með veiðum.