05. desember. 2009 08:45
Mikið verður að gerast í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi á morgun, sunnudag. Þá fara fram tveir stórleikir í 16-liða úrslitum Subwaybikarsins í körfubolta. Fjölnir í Grafvarvogi kemur þá í heimsókn bæði með karla- og kvennalið. Búast má við ýmsum uppákomum í sambandi við þessa leiki, enda komið fram í jólamánuðinn. Heimavöllurinn reynist vonandi Skallagrímsliðunum vel í leikjunum. Karlalið Fjölnið er neðarlega í IE-deildinni, en Skallagrímur meðal efstu liða í 1. deild. Þeir eiga í því að eiga raunhæfa möguleika að leggja úrvalsdeildarliðið að velli. Fjölniskonur eru öflugar í 1. deildinni en Skallagrímskonur ætla sér áreiðanlega að veita þeim verðuga keppni og helst sigra. Kvennaleikurinn hefst klukkan 17 og karlaleikurinn 19,15.