14. desember. 2009 07:12
Bjórskóli Ölgerðarinnar tekur formlega til starfa í þessari viku. Í skólanum sitja 20 nemendur hverju sinni, í eina kvöldstund og fræðast um bjór, uppruna hans, fjölbreytileika, framleiðsluaðferðir og hráefni. Yfirkennari í Bjórskólanum er Úlfar Linnet sem leiðir nemendur í allan sannleikann um bjórinn á lifandi máta. Í skólanum fá nemendur að skyggnast inn í brugghús Ölgerðarinnar og einnig í nýtt "micro-brewery" en þar hefur bruggmeistari Ölgerðarinnar frjálsar hendur með þróun á nýjum tegundum sem verða meðal annars sérbruggaðar fyrir valda veitingastaði.
Nám í Bjórskólanum kostar 4.900 krónur. Þótt ekki séu formleg próf í skólanum þurfa nemendur að innbyrða nokkuð af fjölbreyttu námsefni. Þeir þurfa því að gera ráðstafanir varðandi heimferð, þar sem akstur og áfengi eiga aldrei saman. Á meðfylgjandi mynd eru ljósvakamennirnir Gísli Einarsson og Logi Bergmann Eiðsson að velta fyrir sér námsefninu.