16. desember. 2009 09:02
Í tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2010 til 2013 er ekki minnst einu orði á hefðbundinn landbúnað og sáralítið er fjallað um sjávarútveg. Bændablaðið greinir frá því að þetta hafi eðli málsins samkvæmt vakið athygli í ljósi þess að um er að ræða höfuðatvinnuvegi í byggðum víða um land. Í drögum að byggðaáætlun sem dreift var til fjölda aðila fyrir all nokkru síðan kemur fram að meginmarkmið byggðaáætlunar séu að bæta skilyrði til búsetu, nýsköpunar og sjálfbærrar þróunar í öllum landshlutum, að efla menntun, menningu, samfélög og samkeppnishæfni byggða og bæja landsins með margvíslegum aðgerðum. Skilgreind hafa verið sjö lykilsvið með tillögum um aðgerðir og eftirfylgni til að ná þessum markmiðum.
Sviðin eru eftirfarandi: Almenn atvinnustefna, samþætting opinberra áætlana, efling stoðkerfis atvinnulífsins, nýsköpun og sprotafyrirtæki, erlend nýfjárfesting í atvinnulífinu, efling ferðaþjónustu og félagsauður.