18. desember. 2009 11:07
Á fundi í sveitarstjórn Borgarbyggðar í gærkvöldi var ákveðið að fresta því að taka ákvörðun um niðurskurð í fræðslumálum. Fundað verður aftur í sveitarstjórn í næstu viku þar sem fræðslumál verða rædd. Á fundinum í gær var fjárhagsáætlun lögð fram til fyrri umræðu og var samþykkt samhljóða að vísa fjárhagsáætlun til síðari umræðu sem fram fer 14. janúar nk. Í forsendum fjárhagsáætlunar er gert ráð fyrir að útsvarstekjur lækki áfram á árinu 2010 sem og framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ráðgert er að skatttekjur sveitarfélagsins lækki um rúmlega 4% og verði 1.632 milljónir árið 2010. Álagningarprósenta fasteignaskatts og lóðaleigu verður óbreytt, en gjaldskrár vatnsveitu og fráveitu munu hækka í samræmi við samninga sveitarfélagsins við Orkuveitu Reykjavíkur. Þá munu sorphirðugjöld hækka um 17%, en fyrirhugað er að taka upp tveggja tunnu kerfi við hvert hús í þéttbýli og fara í frekari flokkun á sorpi.
“Til að mæta samdrætti í tekjum verður gætt ýtrasta sparnaðar í rekstri sveitarfélagsins. Nú þegar hafa verið unnar tillögur að hagræðingu í öllum málaflokkum nema fræðslumálum, en ráðgert er að útfæra tillögur að sparnaði í fræðslumálum á næstu dögum,” segir í tilkynningu frá Borgarbyggð. Þá segir að verulegur samdráttur verði í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins en gert er ráð fyrir að framkvæmt verði fyrir um 25 milljónir og eru framkvæmdir við frágang gatna og gangstétta í nýlegum hverfum helsti kostnaðarliður.
Niðurstaða á rekstri Borgarbyggðar verður neikvæður um 12,8 milljónir samkvæmt áætlun á árinu 2010. Veltufé frá rekstri er áætlað tæpar 178 milljónir eða 8,1%. Afborganir lána eru áætlaðar 247 milljónir og nýjar lántökur 50 milljónir. Þetta þýðir að skuldir sveitarfélagsins munu lækka um tæpar 200 milljónir á árinu 2010.
“Þrátt fyrir að Borgarbyggð hafi glímt við erfiða fjárhagsstöðu á árinu 2009, er ljóst að ýmis batamerki eru í fjárhagsáætlun árins 2010 enda gerir hún ráð fyrir frekari hagræðingaraðgerðum í rekstri sveitarfélagsins,” segir í tilkynningunni.