30. desember. 2009 02:37
Samkvæmt venju var allmikið um mót af ýmsu tagi hjá félögum í Briddsfélagi Borgarfjarðar um hátíðirnar. Síðasta mótið fyrir jól var árlegur jólasveinatvímenningur. Fyrirkomulag mótsins er með þeim hætti að spilarar draga sig saman í pör. Úrslit urðu þau að Jón H Einarsson í Borgarnesi og Lárus Pétursson á Hvanneyri urðu Jólasveinar ársins. Í öðru sæti urðu Fjölnir Jónsson í Deildartungu og Magnús Björgvinsson á Akranesi. Í þriðja sæti Borgnesingarnir Unnsteinn Arason og Elín Þórisdóttir, Tungnamennirnir Jóhann Oddsson og Kristján Axelsson fjórðu og Guðmundur Kristinsson og Sigurður Einarsson fimmtu.
Laugardaginn 2. janúar næstkomandi fara félagsmenn á árlegt Þorsteinsmót á Blönduósi. Á mótinu verður spiluð sveitakeppni og er skráning hjá Jóni Eyjólfssyni í síma 893-6538. Mánudaginn 4. janúar verður spilaður tvímenningur í Logalandi. Helgina 9.-10. janúar verður Briddshátíðin á Hótel Borgarnesi. Skráning á mótið er hjá Jóni í síma 893-6538 eða Þórði Ingólfssyni í síma 862-1794.