11. janúar. 2010 12:03
 |
Garðar og Einar Eyjólfsson form. deildarinnar. |
Skallagrímur hefur ráðið þjálfara fyrir meistaraflokk félagsins í knattspyrnu á komandi keppnistímabili. Það er Garðar Jónsson en hann er ekki ókunnur í herbúðum félagsins. Garðar var um árabil lykilmaður í Skallagrímsliðinu ásamt Gunnari bróður sínum. Garðar er næst markahæsti leikmaður í sögu Skallagríms á eftir Valdimar K. Sigurðssyni. Hann hefur mikla reynslu af þjálfun, hefur þjálfað lið Hvatar frá Blönduósi, Sindra frá Hornafirði og Kára af Akranesi með góðum árangri. „Það er Skallagrími sönn ánægja að fá Garðar aftur til félagsins,“ segir í fréttatilkynningu frá knattspyrnudeildinni. Skallagrímur leikur sem kunnugt er í þriðju deildinni í knattspyrnunni. Eins og riðlaskiptingin hefur verið undanfarin ár, má meðal annars reikna með að í riðlinum verði Tindastóll á Sauðárkróki sem féll í deildina síðasta haust og Grundfirðingar sem senda lið til keppni næsta sumar eftir langt hlé.