21. janúar. 2010 03:00
Aðalsveitakeppni Briddsfélags Borgarfjarðar hefst næstkomandi mánudag. “Það lítur út fyrir þátttöku 10-11 sveita og þá spilum við 6 kvölda Patton keppni, tvöfalda umferð og sex spila leiki. Ef einhverjir vilja vera með í þessari keppni, en voru ekki mættir á síðasta spilakvöldi í Logalandi, þá þarf að láta mig eða Jón Eyjólfsson á Kópareykjum vita sem fyrst,” segir Ingimundur Jónsson blaðafulltrúi BB í samtali við Skessuhorn.
Á mánudaginn var spiluðu tuttugu pör einfalt tvímenningsmót. Úrslit urður þau að hjónin Dóra og Rúnar sigruðu með 64,2% skori, prósentustigi meira en Anna og Kristján sem urðu í öðru sæti. Í þriðja sæti voru Magnús og Sveinn, Þórhallur og Brynjólfur í fjórða sæti og Jón og Unnsteinn í því fimmta.