15. febrúar. 2010 08:51
Björgunarsveitamenn fundu laust eftir miðnætti í nótt konu og dreng sem saknað var á Langjökli frá klukkan 17:30 í gær. Voru þau bæði við þokkalega heilsu en orðin mjög köld og hrakin. Farið var með þau á sjúkrahús til aðhlynningar. Svo virðist sem fólkið hafi brugðist rétt við og haldið kyrru fyrir þegar þau urðu viðskila við hópinn sem þau ferðuðust með. Veður var afleitt á jöklinum, mikill vindur, éljagangur og skyggni nær ekkert. Rúmlega 300 björgunarsveitamenn af höfuðborgarsvæðinu, Norður-, Vestur- og Suðurlandi tóku þátt í leitinni og voru notaðir allir tiltækir snjóbílar og vélsleðar auk fjölda annarra farartækja.