15. febrúar. 2010 06:28
 |
Hópurinn sem hlaut tilnefningar og verðlaunahafar. Ljósm. Skessuhorn/SL. |
Tómstunda- og menningarnefnd Borgarbyggðar útnefnir árlega Íþróttamann Borgarbyggðar. Valið er úr tilnefningum sem berast frá forsvarsmönnum félaga og deilda í sveitarfélaginu. Val þetta fór fram síðastliðið föstudagskvöld við hátíðlega athöfn í Íþróttamiðstöðinni Borgarnesi eftir leik KSÍ og Skallagríms í körfubolta. Það var Trausti Eiríksson körfuboltamaður og landsliðsmaður U-18 sem kjörinn var íþróttamaður Borgarbyggðar 2009. Trausti er geysiefnilegur körfuboltamaður og varð m.a. Norðurlandameistari U-18 í körfknattleik í Svíþjóð á síðasta ári með félögum sínum. Viðurkenningu úr Minningarsjóð Auðuns Hlíðhvists Kristmarssonar hlaut sundmaðurinn efnilegi Jón Ingi Sigurðsson.
Tómstunda- og menningarnefnd ákvað að heiðra við þetta tilefni Þorvald Jónsson í Brekkukoti fyrir óeigingjarnt starf í þágu íþrótta-, æskulýðs- og menningarmála um langt árabil í héraðinu. Sonur hans Helgi Eyleifur tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd.
Margir tilnefndir
Þeir sem voru tilnefndir í kjör Íþróttamanns Borgarbyggðar að þessu sinni voru: Konráð Axel Gylfason Faxa fyrir hestamennsku, Sigmar Aron Ómarsson Umf. Íslendingi og Helgi Guðjónsson Umf. Reykdælum fyrir frjálsar íþróttir. Tómstunda- og menningarnefnd valdi Sigmar Aron Ómarsson frjálsíþróttamann ársins. Anna Sigríður Hauksdóttir Umf Íslendingi var tilnefnd blakmaður ársins. Trausti Eiríksson Skallagrími og Karvel Karvelsson Umf Reykdælum fyrir körfubolta og valdi nefndin Trausta sem körfuknattleiksmann ársins. Arnór Tumi Finnsson Umf. Skallagrími er badmintonmaður ársins, Bjarki Pétursson golfkl. Borgarness er golfari ársins. Í knattspyrnu voru tilnefndir Dawid Mikolaj Dabrovski Umf. Skallagrími og Anton Freyr Arnarsson – Umf. Íslendingi og valdi nefndin Dawid Mikolaj sem knattspyrnumann ársins. Fyrir sund voru tilnefndir Jón Ingi Sigurðsson Umf. Skallagrími og Helgi Guðjónsson Umf. Reykdæla og valdi nefndin Jón Inga sem sundmann ársins. Athygli vekur þó að Helgi var auk sundsins tilnefndur fyrir frjálsar íþróttir og sýnir það hversu fjölhæfur íþróttamaður hann er þótt ungur sé að árum.
Margir í landsliðum
Þá var landsliðsfólk úr Borgarbyggð, sem valið var í landslið Íslands á síðasta ári, einnig veittar viðurkenningar. Þau voru: Bjarki Pétursson – Unglingalandslið U15 í golfi, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir – A- landslið kvenna í körfuknattleik, Tinna Kristín Finnbogadóttir – Unglingalandsliðssæti í skák, Hulda Rún Finnbogadóttir. – Unglingalandsliðssæti í skák, Trausti Eiríksson – Unglingalandslið í U18 í körfuknattleik, Sigurður Þórarinsson – Unglingalandslið í U18 í körfuknattleik og Sigmar Aron Ómarsson – Afrekshóp Danssambands Íslands- En hópurinn er í raun landslið dansara.
Loks má geta þess að við þetta tækifæri afhenti Guðmundur Ebeneser Guðjónsson formaður Umf. Skallagríms Pálma Blængssyni formanni körfuknattleiksdeildar viðurkenningu fyrir starf deildarinnar á síðasta ári og ennfremur veitti hann Konráð Konráðssyni viðurkenningu fyrir störf í þágu félagsins á liðnum árum.