03. mars. 2010 04:01
Leikdeild Ungmennafélagsins Skallagríms í Borgarnesi frumsýnir Gullna hliðið í félagsheimilinu Lyngbrekku næstkomandi föstudag klukkan 20:30. Leikstjóri er Rúnar Guðbrandsson. Hátt í 30 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti.
Gullna hliðið er eftir eitt af öndvegisskáldum Íslendinga, Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og hans þekktasta leikrit, enda hefur það unnið sér verðskuldaðan sess meðal sígildra íslenskra leikverka. Í Gullna hliðinu fylgjast áhorfendur með kerlingu sem leggur á sig mikið ferðalag og ómælt erfiði til að reyna að tryggja að sálin af Jóni eiginmanni hennar komist í Himnaríkisvistina fyrir innan Gullna hliðið. Á því ferðalagi verða margir misjafnlega kynlegir kvistir á leið hennar og sálin af eiginmanninum fylgir alltaf með í skjóðu kerlingar.
Kerlingin er með stærstu hlutverkum í íslenskum leikritum, en hún er inni á sviðinu frá upphafi og allt til enda. Það er Rebekka Atladóttir sem er í hlutverki hennar. Með hlutverk Jóns heitins fer Jónas Þorkelsson. Þröstur Reynisson leikur óvininn.
Næstu sýningar verða sunnudaginn 7. mars, fimmtudaginn 11. mars, föstudaginn 12. mars og laugardaginn 13. mars. Allar sýningar hefjast kl. 20:30. Miðaverð er kr. 2.000 en kr. 1.000 fyrir börn 13 ára og yngri. Miðapantanir eru í síma 848 9043. Lyngbrekka er u.þ.b. 10 km vestan Borgarness í hinum forna Álftaneshreppi sem nú er hluti Borgarbyggðar.
-fréttatilkynning