Senda Skessuhorni fréttaskot
Spurning vikunnar
Hver er þinn uppáhalds mánuður
Áskrift að Skessuhorni
Færð á vegum
Vestfirðir Suð-Austurland Vesturland Austurland Norðurland Suð-Vesturland Landið allt Suðurland

Stjórn Geðhjálpar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á heilbrigðisráðherra að lækka komugjöld til geðlækna í fyrirliggjandi frumvarpi um sjúktratryggingar. „Ef frumvarpið verður að lögum hækkar meðalkostnaður öryrkja við geðlæknisþjónustu úr um 20.000 kr. í 63.500 kr. eða um 43.000 kr. á ári. Stjórnin lítur svo á að stefna beri að því að íslensk heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls og því eigi ekki að þyngja byrðar öryrkja og almennings eins og gert er með frumvarpinu. Öryrki með geðfötlun leitar að meðaltali sex sinnum til sjálfstætt starfandi geðæknis og nokkrum sinnum til lækna á heilsugæslu og sjúkrahúsum á hverju ári.“  

Nýr vefur Skessuhorns fer í loftið í dag. Vera kann að meðan færsla hans stendur yfir geti komið rof um tíma, eða gamli vefurinn komið upp aftur. Lesendur eru beðnir að sýna því biðlund meðan á færslutímanum stendur. Nýr vefur byggir á Open source forritun og er um margt ólíkur eldri fréttaveitum Vesturlands. Vefurinn er forritaður og gerður hjá Skessuhorni. Þá vinnu önnuðust vefhönnuðurnir Sigurður Sigbjörnsson og Þórarinn Ingi Tómasson, starfsmaður Skessuhorns. Við hönnun nýs vefjar var tekið mið af því að hann yrði snjalltækjavænn, fyrir spjaldtölvur og síma, auk þess að henta fyrir hefðbundnar tölvur. Þrátt fyrir að búið sé að opna vefinn á eftir að forrita og setja inn ýmsar veflausnir sem munu smám saman bætast við á næstu misserum. Í því samhengi má segja að endanlegri hönnun lýkur aldrei. Ástæða er til að benda lesendum á að skrá þarf viðburði sem fólk óskar eftir að birta á vef og í blaði Skessuhorns í gegnum vefsíðuna. Viðburðaskrá er ekki lengur tengd skrám sveitarfélaga enda byggja þau veflausnir sínar á nokkrum ólíkum vefumsjónarkerfum. Lesendur geta skráð smáauglýsingar í gegnum vefinn (með myndum) þeim að kostnaðarlausu sé ekki um atvinnutengda starfsemi að ræða. Meðal nýjunga má nefna nýburaskrá og þá er einnig boðið upp á skráningu dánartilkynninga á vef og í blað, en þá þurfa aðstandendur að senda mynd og texta í gegnum tölvupóst skessuhorn@skessuhorn.is. Vonandi njóta lesendur Skessuhorns nýs vefjar, en allar góðar og gagnlegar ábendingar óskast sendar á netfangið: toti@skessuhorn.is
„Vegna óvæntrar óvissuferðar starfsfólks Ráðhússins verður ráðhúsinu lokað kl 13:00,“ segir í tilkynningu á vef Stykkishólmsbæjar. Hlutaðeigandi biðjast afsökunar á því.
Styrktarsjóður Kiwanisumdæmisins Ísland/Færeyjar og kiwanisklúbbarnir Elliði, Eldey, Esja, Hekla og Dyngja gáfu fyrr í vikunni Lucas2 hjartahnoðtæki til notkunar í þyrlum Landhelgisgæslunnar. Fór afhendingin fram á þyrlupallinum við Landspítalann í Fossvogi. Georg Kristinn Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar veitti tækinu viðtöku fyrir hönd Landhelgisgæslunnar ásamt áhöfnum þyrla Landhelgisgæslunnar. Tækið sem Kiwanis gaf mun skipta sköpum í umönnun sjúklinga um borð í þyrlunum. Tækið sem kostar á þriðju milljón króna hefur verið í notkun víða um land með afar góðum árangri, þar af í sjúkrabifreiðum á Vesturlandi. Tækið getur leyst af hólmi einn mann um borð í þyrlunum þegar endurlífgun á sér stað, sem annars hefði þurft að sinna hjartahnoði. Getur hann þá sinnt öðrum málum í tengslum við umönnun sjúklinga um borð. Tækið veitir alltaf jafnt og gott hnoð og þreytist ekki, ólíkt mannshöndinni. Tækið er færanlegt milli véla sem eykur enn frekar notagildi þess.
Eldri borgarar í Borgarbyggð sem hafa æft pútt af kappi í vetur. Ljósm. (tekin á tíma): Þórhallur Teitsson.
Um tuttugu eldri borgarar í Borgarbyggð hafa æft pútt af kappi í allan vetur í skemmtilegri aðstöðu í gamla sláturhúsinu í Brákarey sem Glolfklúbbur Borgarness og eldri borgar hafa komi sér þar upp og kalla Eyjuna. Vetraræfingarnar enduðu með þriðja forgjafarmótinu í vetur þriðjudaginn 26. apríl. Þátttakendur voru 15 talsins en leiknar voru 36 holur. Hlutskarpastur án forgjafar varð Þórhallur Teitsson með 54 högg. Annar varð Þorbergur Egilsson með 57 högg og þriðji Ingimundur Ingimundarson einnig með 57 högg. Lilja Ólafsdóttir varð fyrst með forgjöf á 54 höggum. Jytta Juul varð önnur einnig með 54 högg og Guðrún B. Haraldsdóttir var þriðja með 55 högg. Nú stefnir pútthópurinn á að hefja æfingar utan húss því mörg skemmtileg verkefni bíða hópsins í sumar.
Fulltrúar Saga Jarðvangs í Borgarfirði, þau Edda Arinbjarnar, Þórður Kristleifsson og Krisján Guðmundsson, hittu byggðarráð Borgarbyggðar á fundi í síðustu viku og kynntu fyrir sveitarstjórnarfulltrúm stefnumótun í útivist og ferðaþjónustu á jarðvangssvæðinu í uppsveitum Borgarfjarðar. Auk þess sögðu þau frá umsókn Saga jarðvangs sem lögð var inn til Unesco fyrir síðustu jól. „Þetta eru stórar skýrslur og hafa fengið góðar viðtökur ytra. Okkur barst svo bréf um daginn frá Unesco þar sem forsvarsmenn samtakanna fagna umsókninni. Við tökum síðan á móti tveimur úttektaraðilum í sumar. Við erum bjartsýn og teljum að við séum komin með annan fótinn inn hjá Unesco sem er gríðarlegur árangur. Ef vel tekst til þá verðum við í kjölfarið samþykkt,“ segir Edda. „Að fá viðurkenningu eða stimpil Unesco á jarðvangi hér yrði mikil lyftistöng fyrir Borgarfjörð og raunar Vesturland allt. Það yrði mikilvægt fyrir byggðarþróun en ekki síst gott fyrir markaðssetningu á ferðaþjónustu,“ segir Edda. Saga Jarðvangur hefur nú ráðið Önnu Margréti Guðjónsdóttur í tímabundið starf verkefnisstjóra. Anna Margrét skrifaði Unesco skýrsluna og mun nú undirbúa komu fulltrúa samtakanna hingað til lands í sumar.
Strekkings vindur er á nokkrum stöðum á Vesturlandi. Á Kjalarnesi gengur á með sterkum hviðum og fór vindur hæst í 45 m/sek í morgun. Þar fauk húsbíll útaf vegi og eyðilagðist. Í Staðarsveit á Snæfellsnesi er einnig drjúghvasst að norðan. Vegfarendur eru hvattir til að sýna gát og fylgjast með veðurlýsingum á sjálfvirkum veðurstöðvum.
Svana Hrönn Jóhannsdóttir tók að sér starf íþrótta- og tómstundafulltrúa hjá Dalabyggð í mars síðastliðnum. Svana er menntaður íþróttafræðingur og mörgum kunn fyrir framúrskarandi árangur í glímu og hefur hún m.a. hampað Freyjumeninu sex sinnum. Það er ýmislegt framundan í nýju starfi, skipulag á íþróttastarfi sumarsins, tómstundaviðburðir og bæjarhátíðin Heim í Búðardal. Fréttaritari Skessuhorn tók Svönu Hrönn tali og má lesa spjall við hana í blaðinu sem kom út í dag.
Englendingavík opnuð á uppstigningardagÁ morgun uppstigningardag 5. maí, verður veitingahúsið Englendingavík formlega opnað í Borgarnesi. Nýir eigendur keyptu húsakost í víkinni á liðnu ári og hafa undirbúið opnun, sett upp heimagistingu í Sjávarborg og opna nú veitingastaðinn. Á laugardaginn verður auk þess boðið upp á bókamarkað og upplestur fyrir börnin í pakkhúsinu. Að sögn Einars S Valdimarssonar rekstrarstjóra er Englendingavík perla í elsta hluta Borgarnes. „Hér er ró og friður sem einungis er rofin af fuglasöng og sjávarnið. Í gömlu kaupfélagshúsunum þar sem stunduð var verslun til áratuga verður nú rekinn veitingastaðurinn Englendingavík og heimagistingin í Sjávarborg,“ segir Einar. „Í veitingahúsinu verður lögð áhersla á notalegt andrúmsloft í anda gömlu húsanna í víkinni. Matseðillinn tekur mið af mat úr héraði eftir fremsta megni, frá sjó og úr sveit. Einfaldari matseðill verður í hádeginu en „a la carte“ á kvöldin. Þá verður hægt að fá kaffi og kökur um miðjan daginn. Einar segir að opið verði frá k. 11:30 – 23:00, en opnunartímar á veturna verða kynntir þegar nær dregur.“
Nú er unnið að uppfærslu á vef Skessuhorns. Af þeim sökum má gera ráð fyrir tæknilegum hnökrum af og til næstu tímana og fram á morgun, uppstigningardag. Beðist er velvirðingar á því. Nýr vefur hefur verið í vinnslu síðustu misserin og bindum við vonir við að breytingar komi sér vel, einkum fyrir notendur snjalltækja.
Aðalfundur Björgunarfélags Akraness var haldinn síðastliðinn fimmtudag í húsi sveitarinnar við Kalmansvelli. Kosið var í stjórn félagsins á fundinum. Tveir gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu, en það voru þeir Þór Bínó Friðriksson fráfarandi formaður og Gísli Sigurjón Þráinsson fráfarandi varaformaður. Báðir hafa þeir verið í forsvari fyrir félagið um árabil. Á fundinum var þeim Þór og Gísla þakkað óeigingjarnt starf í þágu sveitarinnar undanfarin ár. Formaður nýrrar stjórnar er Birna Björnsdóttir sem hefur langa reynslu úr starfi með björgunarfélaginu. Stjórnin er að öðru leyti þannig skipuð: Sigurður Axel Axelsson varaformaður, Kjartan Kjartansson gjaldkeri, Silvía Llorens Izaguirre ritari og meðstjórnendurnir Kristján Hagalín Guðjónsson, Björn Guðmundsson og Sigurður Ingi Grétarsson. Á fundinum skrifuðu tveir undir eiðstaf Björgunarfélagsins, en það voru þeir Guðni Steinar Helgason og Jón Hrói Finnsson. Ákveðið var að halda framhaldsaðalfund þegar núverandi nýliðahópur hefur lokið þjálfunarprógrammi sínu. Búast má við að því ljúki nú í maí og munu þeir sem standast inntökukröfur sveitarinnar skrifa undir eiðstafinn að því loknu. Rætt er við Birnu Björnsdóttur í Skessuhorni sem kom út í dag.
Ingólfi Erni gengur vel í NoregiGrundfirðingurinn Ingólfur Örn Kristjánsson heldur áfram að gera góða hluti í norska fótboltanum. Hann leikur sem framherji með SK Herd frá Álasundi í 3. deild í Noregi, en það er fjórða efsta deildin þar í landi. Áður en hann gekk til liðs við Herd lék hann með Volda TI, einnig í 3. deild og hér heima með Grundarfirði og Völsungi. Á dögunum léku Ingólfur og félagar hans í Herd í bikarnum. Þar mættu þeir nágrönnunum í Aalesunds FK, sem spilar í norsku úrvalsdeildinni, Tippeligaen. Skemmst er frá því að segja að úrvalsdeildarliðið átti í stökustu vandræðum með 3. deildar lið Herd. Ingólfur kom sínu liði í 2-0 með tveimur mörkum á fyrstu tólf mínútum leiksins. Aalesunds FK náði að jafna áður en Herd komst yfir á nýjan leik. Úrvalsdeildarliðið jafnaði á nýjan leik skömmu fyrir leikslok og sigraði að lokum eftir framlengingu með fjórum mörkum gegn þremur. Ingólfur hefur nú skorað níu mörk í átta leikjum með Herd í öllum keppnum það sem af er tímabili.
Opinn dagur á Bifröst á morgun, uppstigningardagÁ Uppstigningardag, fimmtudaginn 5. maí klukkan 14 - 17, verður nóg um að vera í háskólaþorpinu á Bifröst. Þá verður haldinn opinn dagur sem hefur í áratugi verið árlegur viðburður hjá Háskólanum. Gefst með honum einstakt tækifæri til að skoða háskólaþorpið þar sem að nemendur fara með gesti í gönguferðir um svæðið og sýna þeim t.a.m. húsnæði nemenda, bókasafn, líkamsræktarstöðina og fleiri vistaverur á svæðinu. Þá kynna nemendur, kennarar og starfsfólk einnig námið við skólann.
Leit á vefnum
Fréttasafn
Næsta ár Fyrra ár
Mest lesið í vikunni
Aðsendar greinar
Hulda Hrönn Sigurðardóttir

Þjónusta við einstaklinga með ...

Ásmundur Einar Daðason

Ljósleiðari á hvert heimili

Bjarni Jónsson

Landsnet verði í samfélagseigu

Ólafur Óskarsson

Betri byggð, öruggari umferð

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Spilavíti eru „Víti til varnað...

Frá mbl.is

Ekki tókst að sækja efni

Frá visir.is

Ekki tókst að sækja efni

Skessuhorn á Facebook Skessuhorn á LinkedIn Skessuhorn á Twitter Skessuhorn á Instagram Skessuhorn ehf. kt. 560103-3870 - Kirkjubraut 56, 300 Akranes - Sími 433 5500 - Ritstjórn skessuhorn@skessuhorn.is