01. apríl. 2010 07:55
Uppsjávarveiðiskip HB Granda eru nú í höfn en kolmunnaveiðar hafa legið niðri upp á síðkastið, enda gekk fiskurinn inn í írsku og skosku lögsöguna í síðustu viku þar sem íslensku skipin mega ekki veiða. Að sögn Ingimundar Ingimundarsonar rekstrarstjóra uppsjávarveiðiskipanna er þeim möguleika haldið opnum að senda skipin til veiða að nýju fyrir páska en það verður því aðeins gert ef fréttir berast af veiði á alþjóðlegu hafsvæði utan lögsögu Írlands og Skotlands. ,,Það er beðið eftir að kolmunninn gangi norður á hið svokallaða gráa svæði sunnan við færeysku lögsöguna. Við vorum að vona að það myndi gerast fyrir páskana en það hefur ekki gerst enn. Rússnesk skip eru á svæðinu og við höfum reynt að hlera hvort þau hafi fengið einhvern afla,“ segir Ingimundur.
Áður en kolmunnaveiðin á alþjóðlega hafsvæðinu datt niður náðu öll þrjú skip HB Granda einni veiðiferð hvert, en áætlað er að það taki þau þrjár veiðiferðir til viðbótar að veiða kvótann. Aflinn var unninn í verksmiðjunni á Akranesi. Úthlutaður kolmunnakvóti skipa HB Granda á þessu ári er rúmlega 18.000 tonn og er eftir að veiða af honum um 14.000 tonn. Heimilt er að flytja 10% kvótans á milli ára og var sá réttur nýttur í fyrra.
Guðmundur Hannesson verksmiðjustjóri HB Granda á Akranesi segir að þar séu menn tilbúnir að taka við meiri kolmunna. Þegar fiskurinn er kominn yfir á gráa svæðið við færeysku lögsöguna er hins vegar orðið meiri spursmál um hvort styttra sé með aflann á Akranes eða Vopnafjörð. Því er óvíst hvort meiri kulmunna verði landað á Akranesi á vertíðinni.