04. nóvember. 2010 11:49
- segir Guðmundur Bragi Kjartansson formaður Leikfélagsins Grímnis í Stykkishólmi
Á þessu ári verða frumsýnd hvorki fleiri né færri en fjögur leikverk af Leikfélaginu Grímni í Stykkishólmi þrátt fyrir húsnæðisleysi félagsins. Í vor frumsýndi leikfélagið verkið Láttu ekki deigan síga Guðmundur og núna í nóvember verða, eins og Skessuhorn hefur greint frá, frumsýnd þrjú leikverk; Kvöldhúmið, Karíus og Baktus og Litla hryllingsbúðin. Aldrei hefur verið jafn mikil gróska hjá leikfélaginu og nú. “Mikil aukning hefur verið á fólki til þátttöku, sérstaklega eftir að fjölbrautaskólinn kom í Grundarfjörð. Með allt þetta unga fólk í bæjarfélaginu er ekki annað hægt en að setja upp stórar sýningar,” sagði Guðmundur Bragi Kjartansson formaður Grímnis í samtali við Skessuhorn.
Fyrsta frumsýningin verður á morgun, föstudaginn 5. nóvember og verða fjórar sýningar þessa Norðurljósahelgi. Þetta er gamanleikþátturinn Kvöldhúmið (e. Dinner for one) í þýðingu Guðjóns Sigvaldason leikstjóra. Guðmundur Bragi leikur eitt aðalhlutverkið í því verki.
Í Skessuhorni vikunnar er ítarlegt viðtal við Guðmund Braga, áhugaleikara með meiru í Stykkishólmi.