01. júní. 2011 07:01
Núna á vormánuðum hafa gríðarmiklar framkvæmdir staðið yfir í Mjólkurbúinu á Reykhólum, eins og húsið hefur löngum verið kallað. Í dag 1. júní verður opnuð þar ein sýning helguð bátavernd og hlunnindanytjum. Í tilkynningu á heimsíðu Reykhólahrepps segir að áður hafi þetta verið tvær sýningar og bátasafnið raunar aldrei opið formlega á sérstökum tímum.
Í framkvæmdunum sem nú er lokið var allt hreinsað innan úr húsinu og stórt op gert á steinvegg sem aðskildi bátana og hlunnindasýninguna. Hitann og þungann af verkinu hefur Hjalti Hafþórsson borið, en hann var á sínum tíma einn af frumkvöðlum Bátasafns Breiðafjarðar og hefur starfað í þágu þess frá upphafi. Ýmsir fleiri hafa þó lagt hönd á plóginn.
Mjólkurbúið, sem líka var stundum kallað Mjólkurvellir, var byggt upp úr 1960 eða fyrir um hálfri öld. Þar var þó aldrei mjólkurstöð eins og ráðgert var. Ástæðan mun hafa verið sú að á sama tíma var byggð mjólkurstöð í Búðardal og óráðlegt þótti að reka tvær stöðvar á svo litlu svæði. Um langan aldur var í öðrum helmingi hússins félagsheimili Reykhólasveitar. Upplýsingamiðstöð ferðafólks verður í anddyrinu í sumar eins og mörg undanfarin ár. Þar mun Harpa Eiríksdóttir ferðamálafulltrúi Reykhólahrepps veita ferðafólki upplýsingar og jafnframt leiða gesti um hið nýja safn.