08. júní. 2011 09:12
Skagamenn gerðu góða ferð á Torfnesvöll á Ísafirði í gærkvöldi þar sem þeir mættu liði Guðjóns Þórðarsonar í BÍ/Bolungarvík. Leikar fóru þannig að gestirnir skoruðu sex mörg gegn engu heimamanna. Yfirburðir Skagamanna voru í raun algjörir í leiknum allt frá fyrstu mínútu og til loka og tvímælalaust besti leikur liðsins í sumar. Gömlu kempurnar Hjörtur Júlíus Hjartarson og Stefán Þór Þórðarson skoruðu báðir tvívegis fyrir Skagamenn en Stefán Þór stimplaði sig þar með rækilega inn með sínum tveimur fyrstu mörkum í sumar. Þá skoruðu Gary Martin og Mark Doningen sitt markið hvor. Með þessum úrslitum náðu Skagamenn þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar, með fullt hús stiga utan þeirra tveggja sem þeir létu nágranna sína í Víkingi Ólafsvík hafa nýlega, svona upp á frændskapinn.